Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Umbúðalaust
19. nóvember 2024
Maðurinn sem leitar að börnunum okkar og ungmennum, þegar í óefni er komið er Gummi lögga, eins og hann kallar sig eða Guðmundur Fylkisson. Hann hefur í tíu ár leitað uppi 490 ungmenni. Markmiðið með starfinu er að halda þessum ungmennum á lífi fram yfir átján ára aldurinn. Það er sá aldur þegar þau hverfa úr hans umsjón, ef þannig má taka til orða.
Gummi er gestur Dagmála í dag og ræðir starfið og sín kynni af kerfinu sem vinnur með þessa ungu einstaklinga. Hann telur ekki rétt að vera með Stuðla sem nánast eina úrræðið fyrir þessi ungmenni því að þar blandast saman krakkar sem eru í neyslu og börn sem glíma við hegðunarvanda. Hann gagnrýnir lokun Háholts í Skagafirði sem var langtímaúrræði og vill meina að við séum að súpa seyðið af því núna.
Einkaaðilar hafa tekið við hluta af þessum hópi ungmenna en þar eru orðnir biðlistar og ekki hefst undan. Þá segir hann að huga þurfi betur að aðstandendum og oft á tíðum þeim stóra hópi sem stendur að hverju barni sem lendir á villigötum. Hann hefur orðið vitni að hjónaskilnuðum, sjálfsvígshugsunum og heilsuleysi hjá fólki sem er að bugast undan því gríðarlega álagi sem getur fylgt því mikla verkefni að ala upp barn með fjölþættan vanda og á sama tíma fíknisjúkdóm.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.629 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska