Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Umbúðalaust
26. febrúar 2024
„Þetta er ansi varfærið frumvarp,“ segir Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn um frumvarp dómsmálaráðherra sem kynnt var á þingi í síðustu viku um breytingar á lögreglulögum. Hann segist ekki skilja af hverju Alþingi vilji ekki veita lögreglunni sambærileg tæki á við það sem lögreglulið á Norðurlöndunum hafa, til að geta tryggt áframhaldandi öryggi borgara á Íslandi.
Frumvarið sem hér um ræðir miðar að því að veita lögreglu auknar heimildir til að fylgjast með grunuðum afbrotamönnum þegar kemur að skipulagðri brotastarfsemi og hryðjuverkum. Á sama tíma kveður frumvarpið á um hert eftirlit með störfum lögreglu og fagnar Karl líka þeirri breytingu.
Hann segir að þó svo að frumvarpið verði samþykkt núna, í annarri tilraun þá veiti það samt ekki íslenskri lögreglu sambærilegar heimildir við það sem þekkist í nágrannalöndum.
Karl Steinar sem er sviðstjóri yfir öryggis- og greiningasviði ríkislögreglustjóra, ræðir hér þær breytingar sem íslensk löggæsla stendur frammi fyrir og bendir á að Ísland hafi ekki lengur einhverja sérstöðu þegar kemur að afbrotum. Hér á landi sé glímt við sömu aðferðir og glæpi og þekkist í öllum öðrum Evrópulöndum.
Karl segir að um tuttugu skipulagðir glæpahópar starfi í dag á Íslandi og þeir séu alþjóðlegir. Þannig að Íslendingar vinni með erlendum glæpamönnum. Það er ljóst að hundruð einstaklinga tengjast þessum hópum með beinum eða óbeinum hætti.
Fólksflutningar er ein iðja sem glæpamenn hafa tekið upp og setja þeir fólk oftar en ekki í skuldafjötra. Hann segir að í mörgum málum á Íslandi séu skrítnar tengingar við fólk sem hafi fengið hér vernd og skjól.
Viðbrögð lögreglu við mótmælum ber á góma og hann er spurður um afstöðu til tjaldbúða á Austurvelli.
Sumir glæpahópar beita þeirri tækni að hóta lögreglumönnum og hafa skemmdir á eignum lögreglumanna ratað í fréttir.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.629 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska