Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Umbúðalaust
13. maí 2024
Lífeyrir, ellilífeyrir, séreignarsparnaður og viðbótarlífeyrissparnaður. Allt eru þetta hugtök sem valda ólíkum hughrifum hjá okkur. Flest okkar munu þurfa að reiða sig á slíkar uppsafnaðar greiðslur á síðari hluta ævinnar. En hvenær á að hefja töku lífeyris og hvenær má vitja uppsafnaðra réttinda af þessu tagi? Björn Berg Gunnarsson, sjálfstætt starfandi fjármálaráðgjafi hefur sérhæft sig í þessum málum og fer hér yfir þá kosti sem í boði eru á hlaðborði lífeyrisréttinda.
Sum þessara réttinda erfast á meðan að önnur eru hluti af samtryggingunni sem gagnast þeim sem kerfið okkar á að grípa. Björn Berg segir að mörgum sé umhugað um að tryggja sem best rétt afkomenda sinna á meðan að aðrir horfa til þess að njóta á meðan að heilsan leyfir. Ungt fólk í dag getur orðið vellauðugt ef það hugsar núna út í þessi mál og tekur ákvarðanir til framtíðar þar sem hámarkað er hverju verður safnað og hvernig, til efri áranna. Með því að kynna sér þessi mál er fólk án efa á besta tímakaupi sem því býðst á ævinni. Allt um lífeyrismál út frá forsendum lífeyrisþega í þætti dagsins.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.629 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska