Káfaði á brjósti kvendómara

Bibiana Steinhaus er einn fremsti kvendómari heims.
Bibiana Steinhaus er einn fremsti kvendómari heims.

Þýski knattspyrnumaðurinn Peter Niemeyer slapp með skrekkinn þegar hann strauk óvart brjóstið á kvendómara í leik á dögunum.

Niemeyer leikur fyrir Herthu Berlín og ætlaði að klappa dómaranum, Bibiönu Steinhaus, á öxlina. Ekki vildi hins vegar betur til en svo að Niemeyer strauk brjóstið á Bibiönu.

Eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan hafði dómarinn húmor fyrir öllu saman og sleppti því að áminna Niemeyer. Spurning hvort hann hafi fengið tiltal eftir leikinn í staðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar