Leikkonan Ólöf Jara Skagfjörð prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Monitor og er í viðtali í blaðinu. Þar ræðir hún meðal annars um skilnað foreldra sinna, þeirra Guðrúnar Gunnarsdóttur og Valgeirs Skagfjörð, en mikið var fjallað um hann í íslenskum miðlum í fyrra.
„Ég hugsa ekki mikið um þetta núna enda orðin 21 árs gömul og þannig séð ekki eiginlegt skilnaðarbarn. Ég á hins vegar tvær yngri systur svo þetta var held ég erfiðara fyrir þær. Ég er stór stelpa og bý hvorki hjá mömmu né pabba svo þetta er þægilegra fyrir mig,“ segir Ólöf Jara, en viðurkennir að sér hafi þótt erfitt þegar fjallað var um málið á forsíðum blaða.
„Það var alveg glatað. Ég reyndi að sniðganga verslanir og sjoppur alveg meðan þetta var á forsíðunni. Þetta hefur meiri áhrif en maður heldur því það eru svo margir sem tala um, hafa skoðanir á og beinlínis nærast á einhverju svona slúðri,“ segir Ólöf Jara einlæg.
Móðir hennar er nú í sambandi með Hannesi Heimi Friðbjörnssyni, trommara úr hljómsveitinni Buff, sem leikur einmitt með Ólöfu Jöru í söngleiknum Buddy Holly. „Hannes er frábær svo það er allt í góðu þó það hafi að sjálfsögðu verið skrítið í fyrstu,“ segir Ólöf Jara um sambandið. „Mér finnst aðallega fyndið að mamma skuli eiga kærasta því það hljómar ekki mjög fullorðinslega fyrir mér.“ Spurð hvort hún kalli hann einhvern tímann pabba svarar hún: „Það myndi aldrei gerast.“
Sjá einnig
„Hann mætir iðulega of seint og er alltaf svangur“