22 ára bandarísk stúlka er miður sín eftir að vafasamt powerpoint-skjal, þar sem hún gerir upp öll kynlífsævintýri sín, lak á netið. Stúlkan heitir Karen Owen og er nemandi við hinn virta háskóla Duke.
Í skjalinu var að finna nöfn og myndir af þeim 13 karlmönnum sem Karen hefur sængað hjá auk ítarlegrar lýsingar á hverjum og einum. Lýsingarnar voru svo skreyttar með alls kyns súluritum þar sem kostir þeirra og gallar voru útlistaðir.
Karen kveðst hafa útbúið skjalið í gríni og deilt því með þremur nánum vinkonum sínum. Það var hins vegar fljótt að leka á netið og hefur þegar verið skoðað af tugum ef ekki hundruðum þúsunda.
„Ég sé eftir þessu af öllu hjarta,“ sagði Karen við News of Today og bætti við: „Ég myndi aldrei viljandi skaða þá sem minnst er á í skjalinu.“