Berar að ofan í vinnunni

Þessi hárgreiðsludama ákvað að koma til vinnu í bol.
Þessi hárgreiðsludama ákvað að koma til vinnu í bol.

Stofnandi hárgreiðslustofu í Sydney í Ástralíu er sannkallaður frumkvöðull en hárgreiðsludömur stofunnar klippa kúnnana berar að ofan.

Það tók hinn 26 ára gamla Wojtek Wasilewski eitt og hálft ár að finna nógu margar stúlkur til að starfa á stofunni en nú er Hot Cuts loks opnuð.

„Mig langaði að stofna rakarastofu fyrir karlmenn,“ segir Wasilewski og bætir við að viðskiptin ganga eins og í sögu. „Síminn bara stoppar ekki enda eru stelpurnar glæsilegar.“

Á heimasíðu hárgreiðslustofunnar stendur: „Stofan okkar hefur allt sem þú býst við með einn bónus: Hárgreiðslukonurnar eru ekki bara kynþokkafullar heldur líka berar að ofan!“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar