Kynntust á stefnumótasíðu fyrir ljótt fólk

Tom Clifford og Janine Walker eru yfir sig ástfangin.
Tom Clifford og Janine Walker eru yfir sig ástfangin.

Fyrsta stefnumótaþjónusta Bretlands fyrir ljótt fólk fagnar nú trúlofun tveggja einstaklinga sem kynntust fyrir tilstilli heimasíðu þjónustunnar. Síðan þykir vægast sagt furðuleg enda ótrúleg hugmynd að stofna sérstaka stefnumótasíðu fyrir fólk sem telur sig ljótt.

Tom Clifford og Janine Walker segjast vera með frábæra persónuleika og ætla að gifta sig seinna á árinu eftir að hafa daðrað á netinu og fellt hugi saman.

Parið hittist fyrir mánuði síðan á vefsíðunni TheUglyBugBall.com sem er stefnumótasíða fyrir þá sem eru  „fagurfræðilega heftir“ eða eins og flestir vilja kalla það, ljótir.

Eftir fjögur stefnumót trúlofuðu Clifford og Walker sig og segjast eiga margt sameiginlegt eins og til dæmis ástríðu fyrir ruslfæði og sjónvarpsgláp. „Hún er ótrúlega falleg og ég elska allt við hana,“ sagði Clifford í nýlegu viðtali. „Ég hélt alltaf að ég væri of ljótur til að finna ástina en svo er ekki.“

Vefsíðan TheUglyBugBall.com hafa boðið turtildúfunum í brúðkaupsferð til Wales til að fagna þessum áfanga í sögu síðunnar umdeildu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar