„Einu sinni var lögreglan kölluð til því Logi ætlaði að drepa mig með hníf,“ segir Unnsteinn Manuel Stefánsson, forsprakki hljómsveitarinnar Retro Stefson. „Ég var að koma úr flugi frá New York og var mjög þreyttur og svangur,“ segir Logi bróðir hans, sem er einnig meðlimur sveitarinnar.
Þeir bræður prýða forsíðu nýjasta tölublaðs Monitor, sem kemur út í fyrramálið, og eru í skemmtilegu viðtali í blaðinu.
„Við slógumst eitthvað áfram og hentum hvor öðrum um stofuna en svo hættum við og ég fór inn í herbergi, lagðist í rúmið mitt, hringdi í pabba og sagði: Hann Logi er að missa vitið,“ segir Unnsteinn og heldur áfram:
„Það eru svalir í herberginu mínu og allt í einu labbar lögregluþjónn þar inn og segir mér að leggja frá mér símann. Svo förum við inn í stofu og þar er Logi hágrátandi í örmum annars lögregluþjóns,“ segir Unnsteinn.
„Ég var svona 14 ára,“ segir Logi til útskýringar.
Meira í nýjasta Monitor. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér.