„Fólk hélt í alvörunni að ég hefði verið að leika í fyrstu íslensku klámmyndinni,“ segir María Birta Bjarnadóttir sem lék í kvikmyndinni Óróa og kom þar fram í umtöluðu ástaratriði.
„Það var fjallað um þetta fyrst sem kynlífsatriði og fólk spurði mig hvort ég hefði verið að leika í klámmynd,“ segir María. Henni þótti atriðið þó fremur léttvægt og þótti ekki tiltökumál að sýna hold á hvíta tjaldinu.
María er 22 ára leikkona, fyrirsæta og verslunareigandi. Hún prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Monitor, sem kemur út á morgun, og er í sjóðheitum myndaþætti.