Roman Atwood er þekktur hrekkjalómur vestanhafs sem hefur hrellt ýmsa grunlausa borgara með illvirkjum sínum, við misgóðar undirtektir. Hér færir Roman sig þó örlítið nær þægindahringnum og ætlar að hrekkja kærustuna sína með þeim fréttum að hann hafi haldið framhjá henni. Hrekkurinn vindur hins vegar skemmtilega upp á sig.