Í vikunni flutti lífvarðasveit Bretadrottningar upphafsstef Game of Thrones-þáttaraðarinnar á vaktaskiptum við Buckingham-höll.
Eins og frægt er orðið heimsótti drottningin, Elísabet II, tökustaði þáttanna í Skotlandi í síðasta mánuði og olli mörgum miklum vonbrigðum með því að setjast ekki í járnhásætið góða. Lífvarðasveitin hefur eflaust viljað bæta fyrir þau mistök með því að færa konungsríkin sjö örlítið nær hennar hátign á ný.