Frægir baða sig í ísvatni

Lady Gaga tók að sjálfsögðu þátt.
Lady Gaga tók að sjálfsögðu þátt. Instagram

Þó hún hafi aðeins ratað til Íslands í mýflugumynd enn sem komið er varla þverfótað fyrir ísvatnsáskoruninni á samfélagsmiðlum vestanhafs. Áskorunin felst í því að sá sem skorað er á þarf að demba yfir sig fötu af ísköldu vatni mest 24 tímum eftir að skorað hefur verið á viðkomandi. Þá hefur sá leyfi til að skora á þrjá í viðbót og þannig heldur leikurinn áfram.

Ísvatnsáskoruninni er ætlað að vekja athygli á sjúkdómi sem nefnist blönduð hreyfitaugahrörnun (ALS) en er einnig þekkt sem Lou Gehrigs-sjúkdómur og er algengasta tegund hreyfitaugahrörnunnar (MND). ALS hefur áhrif á svokallaða hreyfitaugunga sem liggja frá miðtaugakerfi til vöðva. Þegar hreyfitaug deyr getur hún ekki sent skilaboð til vöðva og því rýrnar viðkomandi vöðvi og lamast. Enn hefur ekki verið fundin lækning á sjúkdómnum en stöðugt er unnið að því að finna upp ný lyf sem hægja á framgangi sjúkdómsins.

Ótal heimsfrægir einstaklingar hafa ljáð baráttunni rödd sína í gegnum ísvatnsáskorunina og Monitor tók saman tíu fyndnustu ísvatnsmyndbönd fræga fólksins sem finna má á veraldarvefnum í dag.

1. Justin Timberlake.

2. Jimmy Fallon og The Roots.

3. Mark Zuckerberg.

4. (Hin 86 ára gamla) Ethel Kennedy.

5. Lena Dunham.

6. Lady Gaga.

7. Britney Spears.

8. Oprah.

9. Christiano Ronaldo.

10. Chris Pratt.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Lífið leikur við þig þessa dagana og rómantíkin blómstrar. Hún er allra meina bót og byggir þig upp til frekari átaka.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Lífið leikur við þig þessa dagana og rómantíkin blómstrar. Hún er allra meina bót og byggir þig upp til frekari átaka.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Torill Thorup
3
Sofia Rutbäck Eriksson
4
Solja Krapu-Kallio
5
Sarah Morgan
Loka