Helgi Rafn Hróðmarsson

Helgi Rafn Hróðmarsson

Kaupa Í körfu

Það tekur Helga Rafn Hróðmarsson, nýnema í MH, hálftíma að setja upp hanakambinn en hann er hættur að nenna því á hverjum morgni vegna versnandi veðurs. "Hann á það til að fjúka út um allt í miklu roki," segir þessi sextán ára nýnemi sem er á náttúrufræðibraut í MH. Helgi hefur litað kambinn í öllum regnbogans litum en grænn og fjólublár eru uppáhaldið hans. Til að setja upp kambinn bleytir hann hárið, klínir geli í það og blæs það síðan. Þá getur kamburinn haldist uppi í nokkra daga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar