Þór á teikniborðinu hjá Caoz

Þór á teikniborðinu hjá Caoz

Kaupa Í körfu

Dýrasta mynd Íslands á teikniborðinu Undirbúningur stendur nú yfir að gerð tölvugerðrar teiknimyndar í fullri lengd sem byggð er á norrænu goðafræðinni Verið er að undirbúa gerð nýrrar teiknimyndar hjá fyrirtækinu Caoz sem þegar hefur fengið nafnið Þór. "Það er ekki að ófyrirsynju að myndin hefur fengið þetta nafn, hún byggist á norrænu goðafræðinni og Snorra-Eddu og höfuðpersónan er Þór - þrumuguðinn Ása-Þór. Segja má að fyrsta uppkastið að handriti þessarar myndar hafi verið skrifað af Snorra Sturlusyni um 1220," segir Hilmar Sigurðsson, framleiðandi myndarinnar. MYNDATEXTI: F.v. Arnar Þórisson, Gunnar Karlsson, og Hilmar Sigurðsson, aðstandendur Caoz. Arnar Þórisson. Gunnar Karlsson. Hilmar Sigurðsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar