Emma Axelsdóttir, innanhússarkitekt
Kaupa Í körfu
Það er vandaverk að velja innréttingar og að mörgu að hyggja. Gott er að geta leitað til innanhússarkitekta því þeir luma oft á lausnum sem hinn venjulegi húsbyggjandi sér ekki. Hjón nokkur leituðu í smiðju Emmu Axelsdóttur innanhússarkitekts þegar að því kom að ákveða innréttingar í einbýlishús þeirra. Á meðfylgjandi myndum má sjá afrakstur vinnu hennar. Eik var valin í innréttingar og einnig á gólf í borðkrók, holi, stofu og herbergjum, flísar á gólf koma frá Agli Árnasyni. Smíðaþjónustan, Bygggörðum 5, Seltjarnarnesi, sá um smíði innréttinga og Rafspor ehf. sá um raflögnina. MYNDATEXTI: Í eldhúsinu. Hægt er að loka sjónvarpsskápnum. Það að hafa hillu undir skrautmuni brýtur innréttinguna upp og gerir hana stásslegri.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir