Emilíana Torrini tónleikar í Fríkirkjunni

Emilíana Torrini tónleikar í Fríkirkjunni

Kaupa Í körfu

EFTIRVÆNTINGIN var mikil og einlæg í troðfullri Fríkirkjunni áður en Emilíana Torrini og liðsmenn hennar gengu upp að altari og hófu leik sinn. Enda ekki nema von. Langt er síðan hún hefur haldið tónleika hér á landi, plata hennar Fisherman's Woman hefur selst í yfir fimm þúsund eintökum og er enda ein sú besta sem út hefur komið á árinu og svo er líka Fríkirkjan sérdeilis heillandi tónleikastaður; býr yfir einhverjum ólýsanlegum virðuleika sem gerir eiginlega alla þá tónlist sem þar er leikin fallega. MYNDATEXTI: Emilíana Torrini er að verða okkar skærasta stjarna á tónlistarsviðinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar