Nóatún í Grafarvogi

Nóatún í Grafarvogi

Kaupa Í körfu

Nóatúnsverslun opnuð í Grafarvogi Í gær, föstudaginn 18. febrúar, var ný Nóatúnsverslun opnuð við Hverafold í Grafarvogi þar sem Nýkaup var áður til húsa. Að undanförnu hafa verið gerðar töluverðar breytingar á búðinni, hún rýmkuð og deildin fyrir ferskar kjötvörur og fisk hefur verið stækkuð um helming. Að sögn Jóns Þorsteins Jónssonar markaðsstjóra hjá Nóatúni liggur styrkur Nóatúnsverslananna í úrvali á kjötvörum og þegar er búið að ráða þrjá matreiðslumeistara til að reka kjötdeildina í þessari verslun. "Það hefur lengi staðið til að opna Nóatúnsverslun í þessu stærsta hverfi borgarinnar og þessi er rúmgóð eða um 1.400 fermetrar að stærð." MYNDATEXTI: Þrír matreiðslumeistarar hafa verið ráðnir til að sjá um kjötborðið í Nóatúni í Grafarvogi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar