Tryggingamiðstöðin

Tryggingamiðstöðin

Kaupa Í körfu

Gunnar Felixson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, Björgvin Helgason, gæðastjóri Borgarplasts, Bergsveinn Jóhannesson, öryggisfulltrúi Slippfélagsins, og Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur. BORGARPLAST fékk í gær afhent forvarnarverðlaun Tryggingamiðstöðvarinnar fyrir framúrskarandi framgöngu í forvarnarmálum. Viðurkenningin, sem nefnd er Varðbergið, var nú veitt í annað sinn. Jafnframt fengu Kirkjugarðar Reykjavíkur og Slippfélagið í Reykjavík sérstakar viðurkenningar fyrir öflugar forvarnir í fyrirtækjunum. Gunnar Felixson, forstjóri TM, afhenti Björgvini Helgasyni, gæðastjóra Borgarplasts, Varðbergið en verðlaunagripurinn var unninn af Tómasi Einarssyni steinsmið. Þórsteinn Ragnarsson tók við viðurkenningu fyrir hönd Kirkjugarða Reykjavíkur og Bergsveinn Jóhannesson fyrir hönd Slippfélagsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar