Tónskóli Sigursveins

Tónskóli Sigursveins

Kaupa Í körfu

AFMÆLISTÓNLEIKAR SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÁHUGAMANNA Í HÁSKÓLABÍÓI FRUMFLUTTUR TROMPETKONSERT EFTIR JÓNAS TÓMASSON SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT áhugamanna fagnar tíu ára afmæli sínu með tónleikum í Háskólabíói á morgun, sunnudag, kl. 16. Í tilefni afmælisins verður frumfluttur nýr trompetkonsert sem hljómsveitin fékk Jónas Tómasson, tónskáld á Ísafirði, til þess að skrifa fyrir sig og naut til þess styrks úr menningarsjóði SPRON. Hátt í 70 börn, sem stunda nám í fiðluleik samkvæmt Suzuki-aðferðinni, leika einleikshlutverkið í Fiðlukonsert í a-moll eftir Vivaldi og tónleikunum lýkur með því að hljómsveitin leikur fimmtu sinfóníu Tsjajkovskís. Stjórnandi á tónleikunum er Ingvar Jónasson og einleikari í trompetkonsertinum er Eiríkur Örn Pálsson. MYNDATEXTI: Sinfóníuhljómsveit áhugamanna á æfingu undir stjórn Ingvars Jónassonar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar