Margrét Bjarnadóttir á Drangsnesi sími 8623249

Margrét Bjarnadóttir á Drangsnesi sími 8623249

Kaupa Í körfu

Grilluð sigin grásleppa er á meðal þess sem á boðstólum verður á bryggjuhátíðinni á Drangsnesi í júlí. Margrét Bjarnadóttir var í óðaönn að hengja upp grásleppu úr öðr- um róðri vertíðarinnar þegar ljósmyndari Morgunblaðsins renndi við. „Á bryggjuhátíðinni grillum við hana og hún nýtur mikilla vinsælda eins og annað sem við bjóðum upp á á fiskihlaðborðinu,“ segir Margrét í samtali við Morgun- blaðið. Bryggjuhátíðin á Drangsnesi fer fram 20. júlí og er áðurnefnt fiskihlaðborð meðal dagskrárliða á hátíðinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar