Airwaves

Airwaves

Kaupa Í körfu

TÓNLEIKAR Emilíönu Torrini voru haldnir í gærkvöldi í Listasafni Reykjavíkur og voru meðal fyrstu tónleika Iceland Airwaves- tónlistarhátíðarinnar sem nú stendur yfir hér á landi. Á tónleikunum komu einnig fram hljómsveitin Citizen Hope frá Bandaríkjunum og íslenska söngkonan Védís Hervör. Emilíana hefur undanfarið verið á tónleikaferðalagi um Bandaríkin og mun dvelja hér í tíu daga. Framundan er vinna hjá söngkonunni við nýja breiðskífu, sem koma mun í kjölfarið á plötunni Love in the time of science, sem út kom í nóvembermánuði 1999.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar