Rauði Krossinn

Rauði Krossinn

Kaupa Í körfu

20 ÁR eru nú liðin síðan fyrsti hópur flóttamanna frá Víetnam kom til Íslands. Af þeim 34 manna hópi sem kom hingað haustið 1979 eru 20 hér enn og minntist Rauði kross Íslands þessara tímamóta með því að halda samkomu fyrir þá og fjölskyldur þeirra á mánudag. Guðbjörg Hallbjörnsdóttir hefur aðstoðað flóttamenn frá Víetnam frá því að þeir komu fyrst hingað til lands. Hér heldur hún á Margréti, sem er tíu mánaða gömul, en pabbi hennar var í hópi fyrstu flóttamannanna sem komu hingað frá Víetnam

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar