Lækjargata 10

Lækjargata 10

Kaupa Í körfu

Þetta er eitt af fáum húsum sem við eigum eftir og sem hlaðið er úr grágrýti og límt með Esjukalki, sem unnið var í Kalkofninum við Kalkofnsveg. Freyja Jónsdóttir fjallar hér um fallegt hús við Lækjargötu. Þorsteinn Tómasson járnsmiður fékk útmælda lóð á þessum stað 30. júlí árið 1877. Var hún úr lóð Lækjarkots, norðan við Lækjarkotsbæinn, sem Guðrún Ólafsdóttir var þá eigandi að. Húsið sem Þorsteinn fékk leyfi til þess að byggja á lóðinni stendur enn og var 12 x 12 álnir að grunnfleti MYNDATEXTI: Ný mynd af húsinu, en til er góð lýsing á því frá árinu 1931. Þar segir m.a. að húsið sé einlyft með porti og tveimur kvistum, risi og kjallara, með járnþaki á borðasúð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar