Bent Larsen fær fálkaorðuna

Bent Larsen fær fálkaorðuna

Kaupa Í körfu

Danski skákmeistarinn Bent Larsen, sem er Íslendingum góðkunnur fyrir mikið og gott samstarf við íslenskt skáksamfélag, var sæmdur fálkaorðunni við hátíðlega athöfn í gær. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fagnaði Larsen innilega og rifjaði upp að einvígi Larsens og Friðriks Ólafssonar 1956 hefði verið afar eftirminnilegt og væri sennilega fyrsti alþjóðlegi viðburðurinn sem hann myndi eftir. Við þetta tækifæri drógu Bent Larsen og Friðrik Ólafsson um það hvor skyldi hefja leikinn í einvígi þeirra, sem hefst í dag. Hafði Larsen þar betur og sagði Ólafur Ragnar Grímsson það vera í samræmi við almennar samskiptareglur að hann nyti þessa heiðurs og vísaði þar til veitingar fálkaorðunnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar