Heilsugæslustöðin Spönginni

Heilsugæslustöðin Spönginni

Kaupa Í körfu

Um 250 íslenskar stúlkur í alþjóðlegri rannsókn á bólusetningu gegn kynfæraáblæstri Viðamikil alþjóðleg rannsókn er hafin á virkni og öryggi bóluefnis gegn sýkingu af völdum kynfæraáblástursveirunni, herpes. Tekur hún til 6 þúsund þátttakenda í um 20 löndum, þar af um 250 hérlendis. Tíðni kynfæraáblásturs er talin kringum 30% hérlendis hjá fullorðnum en með bólusetningu er talið að koma megi í veg fyrir langstærstan hluta sýkinga af þessum toga og jafnvel hærra hlutfall. Þegar hafa yfir 8.000 manns víða um heim verið prófaðir með bóluefninu en rannsóknin, sem nú er hafin, er lokastig hennar. Gefi hún góða raun segja aðstandendur hennar að búast megi við að heilbrigðisyfirvöld íhugi að ráðast í almenna bólusetningu á ungum stúlkum. MYNDATEXTI: Meðal þeirra sem sjá um rannsóknina sem nú er farin af stað eru (frá vinstri) læknarnir Atli Árnason, Ásmundur Jónasson og Steingrímur Davíðsson og Valdís Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar