Badminton

Badminton

Kaupa Í körfu

Vel heppnað alþjóðlegt mót í badminton í TBR-húsinu. Lítið fór fyrir Íslendingum á Iceland Express alþjóðamótinu sem fram fór í 8. sinn í húsum TBR um helgina. Væntingar voru svo sem ekki miklar því þar sem mótið er hluti af Evrópumótunum og gefur alþjóðleg stig koma hingað sterkir leikmenn í stigasöfnun en það vantaði samt ekki að íslensku keppendurnir legðu sig alla fram. Lengst náði Tinna Helgadóttir sem komst í undanúrslit í tvíliðaleik með Katrínu Atladóttur og einnig í undanúrslit tvenndarleiks með Magnúsi Inga Helgasyni. MYNDATEXTI: Susan Hughes varð sigurvegari í einliðaleik kvenna á alþjóðlega mótinu í TBR-húsinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar