Þríburasystur og piparkökuhúsin

Þríburasystur og piparkökuhúsin

Kaupa Í körfu

Þríburasysturnar Hanna Þóra, Mollý og Melkorka Dobrzanieckam sem eru alveg að verða sex ára, voru mjög uppteknar við að skoða kastala og fleira úr piparkökum sem er til sýnis í Kringlunni nú fyrir jólin. Piparkökuhúsin vekja ávallt mikla athygli og í ár má þar m.a. sjá góðmennið græna Shrek og félaga, Hogvartsskóla galdra og seiða sem Harry Potter og vinir sækja sem og íslenskar byggingar í smækkaðri mynd, t.d. Alþingishúsið og Hallgrímskirkju.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar