Þórður Gunnar Þorvaldsson

Þórður Gunnar Þorvaldsson

Kaupa Í körfu

Í BARNABÓKADEILDINNI á Borgarbókasafninu sat Þórður Gunnar Þorvaldsson og var að strjúka ryk úr hillum. Hann er sautján ára sumarstarfsmaður á safninu. Þórður segir að það megi deila um það hvort hann lesi mikið eða ekki. "Ég les alveg um tvær bækur í mánuði. Núna er ég að lesa bók sem heitir Furðulegt háttalag hunds um nótt og er hún um einhverfan strák. Þetta er mjög sniðug bók og gaman að sjá inn í þennan heim. Á sumrin les ég skáldsögur en á veturna eru það fræðibækurnar vegna skólans."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar