Prestsvígsla og brúðkaup

Prestsvígsla og brúðkaup

Kaupa Í körfu

ÁSA Björk Ólafsdóttir guðfræðingur var sett inn í embætti annars prests Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík í gærkvöldi. Hún hafði hlotið prestsvígslu í Dómkirkjunni fyrr í gær ásamt guðfræðingunum Guðrúnu Eggertsdóttur og Sjöfn Þór...Skömmu síðar brá ýmsum viðstöddum þegar ómþýtt orgelspil breyttist í dynjandi brúðarmars og ekki var laust við að undrunarkliður færi um kirkjuna. Þegar fólk leit um öxl sá það nýja prestinn leiða brúðguma sinn, Óskar Þórisson, inn kirkjugólfið. Voru þau síðan vígð í hjónaband af Hirti Magna. Það er því ekki ofmælt að það hafi verið margheilagt í Fríkirkjunni í gærkvöldi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar