Guðlaugur og Brynja

Guðlaugur og Brynja

Kaupa Í körfu

Foreldrar mínir og yngri bróðir koma frá Akureyri til að vera með okkur svona í fyrsta skipti," segir Brynja Dögg Hermannsdóttir sem í ár heldur jól í fyrsta skipti í eigin íbúð ásamt sambýlismanni sínum, Guðlaugi Arnarssyni. Brynja og Guðlaugur eru nýflutt inn í íbúðina sem þau keyptu fyrr á árinu. "Við borðum saman hér á aðfangadagskvöld. Við Gulli erum bæði vön því að hamborgarhryggur sé í matinn og sú hefð er þess vegna auðvitað í heiðri höfð. Við erum með graflax í forrétt og einhvern dýrindis eftirrétt, sem ekki er enn búið að ákveða hvað verður." MYNDATEXTI Þessi skemmtilegi sveinki er fyrsta jólaskrautið sem unga parið keypti sér og hefur fylgt þeim frá upphafi búskaparins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar