Tónlistarfólk

Tónlistarfólk

Kaupa Í körfu

Hinir árlegu nýárstónleikar í Tíbrá-tónleikaröðinni í Salnum. Á efnisskránni eru að vanda ljúfustu söngvar, svellandi valsar, spriklandi polkar og önnur gleðitónlist úr gnægtabrunni Vínartónlistarinnar í flutningi Sigrúnar Hjálmtýsdóttur sópransöngkonu og Salonhljómsveitar Sigurðar Ingva Snorrasonar. Hljómsveitin er skipuð átta tónlistarmönnum, fiðlaranum Sigrúnu Eðvaldsdóttur, sem leikur einleik og er jafnframt konsertmeistari salonhljómsveitarinnar, Pálínu Árnadóttur, fiðluleikara, Bryndísi Höllu Gylfadóttur, sellóleikara, Hávarði Tryggvasyni, kontrabassaleikara, Martial Nardeau, flautuleikara, Sigurði Ingva Snorrasyni, klarínettuleikara, Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, píanóleikara og Pétri Grétarssyni, sem leikur á slagverkshljóðfæri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar