Gulli rakari á Nikk

Gulli rakari á Nikk

Kaupa Í körfu

ÞAÐ verða viðbrigði fyrir fjölda tryggra viðskiptavina Gulla á hárgreiðslustofunni Nikk við Kirkjuhvol þegar rekstri stofunnar verður hætt þar, en í dag eru síðustu forvöð að fara í klippingu á stofunni. Hárgreiðslustofa hefur verið rekin í húsnæðinu í 105 ár, en það hefur nú verið selt og hyggjast nýir eigendur nýta húsið sjálfir. Um 40 ár eru liðin frá því Gulli hóf fyrst störf á Nikk, en hann tók alfarið við rekstri stofunnar árið 1984. Spurður um hvað hann ætli að taka sér fyrir hendur þegar stofunni verður lokað segir Gulli að það sé enn ekki ákveðið. "Ég ætla að setjast niður og hugsa," segir hann og brosir. MYNDATEXTI: Gulli á Nikk snyrtir hár Sigvalda Friðgeirssonar. Hárgreiðslustofa hefur verið rekin í húsnæðinu í 105 ár.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar