Stefán Kristjánsson

Stefán Kristjánsson

Kaupa Í körfu

STEFÁN Kristjánsson heitir skákmaðurinn sem hér sést tefla á Íslandsmóti skákfélaga, fjölmennasta skákmóti landsins, en fjórar umferðir mótsins fara fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð um helgina. Stefán, sem teflir fyrir Taflfélag Reykjavíkur, vantar nú aðeins 14 skákstig í viðbót til að vera tilnefndur stórmeistari í skák. Takist honum það verður hann tólfti íslenski stórmeistarinn sé Bobby Fischer talinn með. MYNDATEXTI: Efnilegur - Stefán Kristjánsson, verðandi stórmeistari í skák.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar