Dressmann útsala

Dressmann útsala

Kaupa Í körfu

ÚTSÖLUR hefjast sífellt fyrr eftir jólin. Í gær hófust t.d. útsala bæði hjá Ikea og Dressmann og í dag hefst útsalan í Debenhams. Að sögn Birtu Flókadóttur, markaðsstjóra Kringlunnar, byrjar útsalan þar formlega 4. janúar en eitthvað er um að nokkrar verslanir hefji sínar útsölur þegar 2. janúar. Hjá Theódóru Þorsteinsdóttur, markaðsstjóra Smáralindar, fengust þær upplýsingar að þar hefjist útsalan formlega 2. janúar. Aðeins örfáar verslanir hefji sínar útsölur fyrr, þ.e. Dressmann sem hóf sína útsölu í gær, Debenhams sem byrjar sína útsölu í dag, auk þess sem Theódóra segir að allar líkur séu á að Hagkaup hefji sína útsölu strax á þessu ári. MYNDATEXTI: Kostakjör - Útsölurnar fara senn að bresta á en útsala hófst í verslunum Dressmann í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar