Amnesty mótmælir

Amnesty mótmælir

Kaupa Í körfu

ÍSLANDSDEILD Amnesty International efndi til útifundar á Lækjartorgi í gær í því skyni að mótmæla fangabúðunum við Guantanamo-flóa á Kúbu, en fimm ár voru í gær liðin síðan bandarísk yfirvöld fluttu fyrstu fangana í búðirnar. Undir lok fundarins var appelsínugulum blöðrum sleppt í táknrænni afhöfn til að undirstrika kröfu Amnesty um að fangarnir sem dvelja í Guantanamo verði látnir lausir eða þeir látnir sæta ákæru. Alls dvelja 430 einstaklingar af 35 þjóðernum í búðunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar