Litla-Hraun - fangelsi

Litla-Hraun - fangelsi

Kaupa Í körfu

VALTÝR Sigurðsson fangelsismálastjóri telur mikilvægt að tryggja fjármagn upp á um 200 milljónir króna til að ljúka hönnunar- og teiknivinnu vegna uppbyggingar fangelsanna í landinu og ekki sé réttlætanlegt að fresta lengur byggingu nýs fangelsis á höfuðborgarsvæðinu við Hólmsheiði. Binda þurfi enda á 46 ára gamla byggingarsögu fangelsisins en aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að draga úr þenslu gætu sett fangelsismálin í ákveðið uppnám. Fram til ársins 2010 þarf 2,1 milljarð króna til uppbyggingar fangelsanna í landinu, þar af 500 milljónir í Fangelsið Litla-Hraun samkvæmt tillögum fangelsismálastjóra. MYNDATEXTI: Fangelsið á Litla-Hrauni er yfirfullt og illa í stakk búið til að taka á móti föngum sem þarfnast meðferðar. Því er nauðsynlegt að binda enda á áratuga frestun byggingar nýs fangelsis að mati fangelsismálastjóra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar