Allt á fullu í Bláfjöllum

Allt á fullu í Bláfjöllum

Kaupa Í körfu

Loksins, loksins gæti þessi ungi vígalegi drengur verið að hugsa þar sem hann brunar áfram á skíðunum í Bláfjöllum í gær, en þar er núna góður snjór og útlit fyrir að hægt verði að hafa opið næstu daga og jafnvel vikur eftir nær eins og hálfs mánaðar lokun sökum snjóleysis. Spáð er áframhaldandi úrkomu og ef hitastigið á láglendi er ekki nema 4-5 gráður getur sú úrkoma gjarnan fallið sem snjór í 500 metra hæð yfir sjávarmáli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar