Í sminki

Í sminki

Kaupa Í körfu

KOSNINGASJÓNVARPI Kastljóss og fréttastofu Sjónvarpsins var formlega hleypt af stokkunum í gær með umræðum í beinni útsendingu úr sjónvarpssal. Þar tóku þátt leiðtogar þeirra stjórnmálaflokka sem ætla að bjóða sig fram til alþingiskosninganna í vor og fengið hafa listabókstaf úthlutað. Það voru því Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem leiddu saman hesta sína. Þau hittast aftur í beinni sjónvarpsútsendingu að kvöldi 7. maí nk. MYNDATEXTi Í sminki Steingrímur J. Sigfússon og Geir H. Haarde ræddu málin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar