Björk í Laugardalshöll

Björk í Laugardalshöll

Kaupa Í körfu

BJÖRK Guðmundsdóttir söng ásamt fjórtán manna hljómsveit fyrir þéttskipaðri Laugardalshöllinni á öðrum degi páska. Tónleikarnir voru þeir fyrstu í heimstónleikaferð sem mun vara í 18 mánuði. Á tónleikunum lék Björk nokkur lög af væntanlegri breiðskífu sinni, Voltu, ásamt eldri lögum í nýjum og kraftmiklum útsetningum. MYNDATEXTI: Litaskrúð - "Að undanskilinni frábærri og öruggri frammistöðu Bjarkar bar mest á litskrúðugum kvenblásurunum sem deildu sviðinu með gullklæddu söngkonunni," segir meðal annars í gagnrýni Alexöndru Keld.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar