Beðið eftir ungunum á Bakkatjörn

Beðið eftir ungunum á Bakkatjörn

Kaupa Í körfu

ÁLFTIN Svandís er trú sínum heimaslóðum og liggur nú á eggjum í hólmanum við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Mun þetta vera 13. árið í röð sem Svandís og hennar ektamaður unga út eggjum sínum í þessum sama hólma. Undanfarin tvö ár hefur þeim heiðurshjónum orðið fimm unga auðið og verður spennandi að fylgjast með hve margir afkomendurnir verða í ár.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar