Faxaflóastjóri stingur sér

Faxaflóastjóri stingur sér

Kaupa Í körfu

GÍSLI Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, stakk sér fyrstur til sunds í árlegu áheitaboðsundi Sundfélags Akraness sem fram fór í gær. Syntu 15 ungmenni félagsins, auk Gísla, samtals 21 km frá Reykjavíkurhöfn til Akraneshafnar en markmiðið er að fjármagna ferð félagsins í æfingabúðir sunnar í Evrópu. Bátar frá Faxaflóahöfnum og Björgunarfélagi Akraness sigldu með sundgörpunum. Þeir sem syntu mest fóru tæpa 4 kílómetra en þeir yngstu, rétt rúmlega fermdir, syntu hins vegar minna. Hafnarstjórinn synti sjálfur 150 metra en að sögn kunnugra virtist hann tilbúinn að synda miklu meira.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar