Konráð Sæmundsson

Konráð Sæmundsson

Kaupa Í körfu

Aðstaðan er svo sem engin og verkfæri eru af skornum skammti svo ég vinn að mestu með höndunum og eftir minni," segir hagleiksmaðurinn Konráð Sæmundsson, sem segist vera að drepa tímann með því að dunda sér við smíði bátalíkana sér til skemmtunar og yndisauka. Konráð, sem er á 92. aldursári, fór ekki að snúa sér að bátasmíðinni fyrr en hann varð ekkill fyrir þremur árum. Eftir hann liggja nú átta skipslíkön, sem öll eru af síldarbátum sem Konráð var einu sinni háseti á. Þar af eru þrjú líkananna komin á Sjóminjasafn Reykjavíkur, en það eru Sjöstjarnan, Ester og einn kútter, sem svo var kallaður, en þeir sigldu vélarlausir með seglum hér á árum áður.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar