Helena og Ulrik

Helena og Ulrik

Kaupa Í körfu

Helena 9 ára heilsar upp á kálfinn Ulrik sem fæddist í Húsdýragarðinum aðfaranótt 16. október. Ulrik býr í fjósinu ásamt kúnum Blökk, Skræpu og Bröndu, kvígunni Stjörnu og nautkálfunum Muggi og Blakki. Þá eru einnig í fjósinu gylturnar Freyja og Frigg og gölturinn Gullinbursti og svo auðvitað litlu grísirnir þeirra Friggjar og Gullinbursta sem komu í heiminn hinn 29. september síðastliðinn. Þá er kýrin Skræpa að nálgast burð og má því segja að það sé mikil frjósemi í fjósinu nú á haustmánuðum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar