Tjörnin hreinsuð

Tjörnin hreinsuð

Kaupa Í körfu

Eitt af haustverkunum hjá umsjónarmönnum í Ráðhúsi Reykjavíkur er að hreinsa lauf sem safnast fyrir í litlu tjörninni við Ráðhúsið. Þetta verður gert í dag, en tjörnin er ekkert augnayndi eins og hún leit út í gær. Margir húseigendur hafa undanfarna daga unnið að því að hreinsa lauf úr þakrennum, en það er nauðsynlegt ef rennsli af þökum á að vera eðlilegt. Fullar þakrennur geta líka skapað hættuleg grýlukerti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar