Forvarnir gegn fíkniefnum

Forvarnir gegn fíkniefnum

Kaupa Í körfu

RADDIR grunnskólanema gegn fíkniefnum taka að heyrast í fjölmiðlum eftir helgina, í tengslum við Forvarnadaginn 21. nóvember, í formi auglýsinga þar sem settar verða fram tillögur unglinganna sjálfra að fíkniefnalausu lífi. Kjarninn í Forvarnadeginum felst í dagskrá í öllum 9. bekkjum landsins á miðvikudaginn og tekur hún mið af því að áratuga rannsóknir sýna að þrjú ráð geta stuðlað að því að forða börnum og unglingum frá því að ánetjast fíkniefnum. Þar skiptir mestu máli að fjölskyldan verji sem mestum tíma saman og að börn og unglingar séu hvött til að taka þátt í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi MYNDATEXTI Stuðningur Róbert Wessmann er forstjóri Actavis sem styður verkefnið en forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, átti frumkvæðið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar