Bruni Fannarfell

Bruni Fannarfell

Kaupa Í körfu

KARL og kona björguðust úr brennandi íbúð í Fannarfelli 6 í gærmorgun en liggja nú á lýtalækningadeild Landspítalans með brunasár. Að sögn læknis er líðan þeirra góð eftir atvikum. Maðurinn brenndist ekki mikið, en hefur þó sár á fótum og hlaut konan brunasár á höndum og öxl. Þrír lögreglumenn sem fóru í útkallið fengu snert af reykeitrun og fóru á slysadeild. Eldurinn kom upp í svefnherbergi íbúðarinnar og var stigagangurinn rýmdur á meðan slökkvilið barðist við eldinn. Íbúðin stórskemmdist í eldinum MYNDATEXTI Gunnar Sverrisson í Fannarfelli með ónýta hurð eftir ákveðna lögregluþjóna. Hann hefur samt fullan skilning á aðgerðum þeirra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar