Hellisheiðarvirkjun

Hellisheiðarvirkjun

Kaupa Í körfu

Orkuveita Reykjavíkur hefur tekið í notkun fyrstu lágþrýstivél landsins í Hellisheiðarvirkjun, en vélin kemur til með að spara Orkuveitunni orkukaup fyrir almennan markað fyrir um 700 milljónir króna á ári. Vélin er af nýrri gerð og nýtir skiljuvatn sem ekki er hægt að nýta í þeim tveimur háþrýstihverflum sem fyrir eru í virkjuninni. Hún er sú fyrsta af sinni gerð í jarðhitavirkjunum hér á landi að því er fram kemur á heimasíðu OR. Nýtt kynningarrými Hellisheiðarvirkjunar var einnig tekið formlega í notkun um helgina. Þar er að finna ýmiss konar fræðsluefni um nýtingu jarðhita hér á landi og vinnsluferlið í virkjuninni. Verður kynningarrýmið opið alla daga frá klukkan 9 til 18

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar