Skrekkur

Skrekkur

Kaupa Í körfu

HLÍÐASKÓLI sigraði í hæfileikakeppni ÍTR og grunnskólanna í Reykjavík, Skrekk, en úrslitin fóru fram í Borgarleikhúsinu í gærkvöld. Nemendur Hlíðaskóla réðust ekki á garðinn þar sem hann er lægstur heldur fjallaði atriði þeirra um hina brengluðu kvenímynd sem er við lýði í dag og hversu óraunsæ hún er. Sýning þeirra var kölluð Hvað er fullkomnun? Í öðru sæti varð Seljaskóli með atriðið Galum Gong og Hagaskóli í því þriðja með dúkkuleikinn Nei. Seljaskóli fékk einnig áhorfendaverðlaun Skjás eins sem sýndi beint frá keppninni. Gríðarleg stemning var meðal fjölda áhorfenda í salnum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar