Jólakúlur og jólaskraut

Jólakúlur og jólaskraut

Kaupa Í körfu

Fyrir nokkrum árum hefði engum komið til hugar að vera með öðruvísi litt jólatré en grænt en tímarnir hafa svo sannarlega breyst. Jólatrén er nú hægt að fá nánast í öllum regnbogans litum sem og jólaskrautið og sumir skipta um þema á hverju ári en aðrir halda í hið gamla góða eða blanda þessu saman. Víst er að aldrei hefur verið meira til af fallegu jólaskrauti en munið að minna er stundum meira. Jólaskrautið sem hér sést á myndunum er úr Garðheimum. MYNDATEXTI Rautt er hinn sígildi jólalitur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar